Nýhil er rithöfundaforlag og hefur þann tilgang að stuðla að vexti og viðgangi nýsköpunar í íslenskum bókmenntum. Nýhil er sjálfseignarstofnun undir beinni stjórn ungra, starfandi rithöfunda, rekin án arðsemismarkmiða.
Nýhil skipuleggur alþjóðlega ljóðahátíð og fjölda minni viðburða, einkum upplestra. Nýhil gefur út vandaðar ljóðabækur (og önnur rit) eftir efnilega höfunda sem annars kæmu ekki út. Nýhil er með skrifstofuaðstaðu og lagerrými í ReykjavíkurAkademíunni.
Nýhil ses. / kt. 471106-1270 ReykjavíkurAkademíunni Hringbraut 121 107 Reykjavík
Engin ummæli:
Skrifa ummæli